jæja!
ok ég viðurkenni
að ég nenni eiginlega ekkert að blogga. Bloggandinn kemur ekki
lengur yfir mig.
En auðvitað var ég
búin að lofa nokkrum vinum mínum að setja hérna inn fréttir af
okkur skötuhjúunum í Grindavík, svona af og til!
En það er alltaf
nóg að gera! Báðir skólarnir komnir á fullt og eiginlega meira en
nóg að gera. Dagarnir geta verið svolítið langir því ég náði að
pakka svolítið vel dögunum í söngskólanum. Er t.d. í tónfræði frá
15-19 á þriðjudögum og söngtímum frá 14.30 – 17.00 á fimmtudögum.
Þetta er bara mjög
gott því það sparar mér aksturinn á milliJ
Síðan er alltaf
eitthvað að gerast í tónlistinni. Við erum reyndar ekkert að missa
okkur. Mér liggur allavega ekki neitt á! En næstu helgi, nánar
tiltekið laugardaginn 14.október klukkan 14 verða haldnir
minningartónleikar um hann Pétur vin okkar sem lést í vor. Við
munum koma fram þar og nokkrar aðrar hljómsveitir, t.d. í svörtum
fötum..
Síðan komum við
líka fram um þar næstu helgi á Vetrarhátíð í Smáralind.
Pálmar er síðan
búinn að vera í
studioi að taka upp tvö frábær lög og ég get ekki beðið eftir að
heyra útkomuna!
Annars er lífið í
Grindavík alltaf jafn yndislegt. Við erum reyndar ekki enn búin að
fá gardínur, en vonandi verður því kippt í lag fljótlega. Margir
eru búnir að heimsækja okkur. Öll systkini Pálmars eru búin að
kíkja við, og má segja að hans fjölskylda sé ögn duglegri en
mínJ
en það er allt í lagi. Skúli, Greta, mamma, pabbi, tengdó, Greta
amma, Hermann afi og Þórkatla frænka… eru öll búin að koma í mat
til okkar. En mér finnst voða gaman að fá folk í
matJ
Daníel og Marta
eru líka búin að kíkja við og þakka ég kærlega fyrir sætu gjöfina
sem þau gáfu okkur. Amma, afi og Þórkatla gáfu okkur safapressu í
hæsta gæðaflokki og við erum alltaf að prófa okkur áfram í
heilsudrykkjunum
Þannig að það eru allir velkomnir í safa til
okkar (en þið ættuð alveg að geta fengið kaffi líka).
Við bjóðum síðan
kannski síðar í smá innflutningsparty, eða þegar íbúðin verður
meira tilbúin. En eins og margir vita er hún enn með steypugólfi og
gardínulausum gluggum!
En auðvitað eru
allir sem “eiga leið hjá” meira en velkomnir í heimsókn til
okkarJ
Hringið bara á
undan ykkur því við erum ekki alltaf heima
en þangað til
næst
Lifið heil
kveðja Hóffa!